Félag viðurkenndra bókara

      
      
Útskrift viðurkenndra bókara
Mánudagur, 30. janúar 2012 21:39

Útskrift viðurkenndra bókara
Föstudaginn 27. janúar voru útskrifaðir 74 viðurkenndir bókarar og óskum við þeim hér með innilega til hamingju með þennan áfanga.

Opni háskólinn verðlaunaði  Brynjar Örn Ólafsson fyrir góðan námsárangur . Stefán Einar Stefánsson, formaður VR afhenti einnig verðlaun til Brynjars Arnar fyrir góðan árangur ásamt því að verðlauna Sveinbjörn Bjarnason  fyrir „life-long learning“. Var það gert til að benda á að það er aldrei of seint að mennta sig, aldur skiptir ekki máli. Við sendum okkar bestu þakkir til aðstandenda námsins í Opna háskólanum fyrir að leyfa forsvarsmönnum FVB að vera viðstödd og einnig hversu vel var staðið að útskriftinni.


Bestu kveðjur
Júlía Sigurbergsdóttir, formaður FVB

 
10 ára afmæli
Fimmtudagur, 26. janúar 2012 09:24

Kæru félagsmenn

Félag viðurkenndra bókara fagnar 10 ára afmæli

Félagið var stofnað 26. janúar 2002 og voru stofnfélagar 33. Í fyrstu stjórn sátu Már Jóhannsson, Rósa Ólafsdóttir, Gunnar Páll Ívarsson, Gísli J Grímsson og Anna Antonsdóttir.

Félagið hefur vaxið ört á þesssum 10 árum og er nokkuð ljóst að brýn þörf er á starfsemi þess. Í dag eru um 360  manns skráð í félagið, eða um það bil 75% allra útskrifaðra nemenda.

Því fleiri sem við erum, því öflugri er félagið og samstaðan sterkari. Markmiðið er að hámarka árangur og skilvirkni, tryggja velferð og viðhalda þekkingunni ásamt því að skapa varanlegt samkeppnisforskot. Forskotið er sérþekkingin sem við höfum og þurfum að viðhalda, óáþreifanleg eign sem er dýrmætasta auðlindin okkar.

Megi félagið vaxa og eflast í framtíðinni.

Að svo mæltu sendi ég ykkur mínar heillaóskir og þakka öllum fyrir mikilvægt framlag  til félagsins, megi ykkur farnast vel í framtíðinni.


Fyrir hönd Félags viðurkenndra bókara

Júlía Björg Sigurbergsdóttir, formaður

 
Ferbrúarráðstefna
Miðvikudagur, 25. janúar 2012 07:59

Febrúarráðstefna Félags viðurkenndra bókara
Föstudaginn 10. febrúar 2012

Ráðstefna
Hótel Saga, Hagatorgi - Kötlusalurinn (áður Harvard) kl. 09:00 – 16:30
Verð kr. 8.500,-  fyrir félagsmenn  15.000,- kr. fyrir þátttakendur utan félags.
Innifalið er kaffi og meðlæti, hádegismatur og fyrirlestrar.
Námskeiðið gefur 15 einingar

Afmælisfögnuður
Í tilefni 10 ára afmælis félagsins – léttar veitingar í boði
Hótel Saga, Hagatorgi  - Snæfellssalurinn Kl. 17:00 – 19.00

Dagskrá:

09:00 – 09:05 Setning ráðstefnu
09:05 – 10:20 Tölur frá öðru sjónarhorni  – Hermundur Rósinkranz, talnaspekingur
10:20 – 10:30 Kaffihlé  
10:30 – 12:00 Skattalagabreytingar ársins 2012 – Fulltrúar frá RSK
12:00 – 12:10 Launakönnun 2012
12:10 – 13:00 Hádegishlé
13:00 – 14.45 Laun og launaviðtal – hvers virði er ég? – Aðalsteinn Leifsson, lektor HR
14:45 – 15:05 Kaffihlé
15:05 – 15:30 Skemmtinefnd
15:30 – 16:45 Bókhaldsleg færsla skattalagabreytinga,  fyrirspurnir – Lúðvík Þráinsson
16:45  - 16:50 Ráðstefnuslit
17:00 – 19:00 Afmælisfagnaður

Þátttaka á ráðstefnu skráist á vef fvb.is  fyrir 6. febrúar n.k.(Ekki þarf að skrá sig sérstaklega vegna afmælisfagnaðar). Vinsamlegast tilgreinið  nafn, kennitölu og heimilisfang og ef greiðandi er annar, (t.d. fyrirtæki eða vinnuveitandi). Þátttakendur þurfa að afskrá sig ef til forfalla kemur, í síðasta lagi klukkustund áður en ráðstefna hefst.Ef það er ekki gert sér félagið sér ekki annað fært en að senda reikning á viðkomandi vegna ráðstefnugjaldanna.Afskráning er framkvæmd á síðu félagsins eða með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
        
Muna eftir að mæta með nafnspjöldin og fartölvu ef vill !
Námskeiðsgögn verða aðgengileg á síðu FVB en ekki prentuð út til dreifingar.
Þátttakendur ráðstefnunnar geta leigt herbergi á Hótel Sögu  á sérkjörum.
Eins manns herbergi með morgunmat kr. 12.000,-  og tveggja manna kr. 14.000

 

skattablogg3

Úr myndasafni

Póstlistaskráning

Hér geta þeir sem ekki eru félagsmenn skráð sig á almennan póstlista. Póstur sem félagið ætlar félagsmönnum eingöngu er ekki sendur á þennan póstlista heldur á þau netföng sem eru skráð í félagaskránni.
captcha
Skráið öryggisorðið í reitinn

Við erum á facebook

FVB á Facebook

Nýtt efni á rsk.is

Tíund, fréttarit Ríkisskattstjóra

Á döfinni

15.feb - Eindagi staðgreiðslu
05.apr - Eindagi VSK
síðasta mánuð Febrúar 2012 næsta mánuð
M Þ M F F L S
week 5 1 2 3 4 5
week 6 6 7 8 9 10 11 12
week 7 13 14 15 16 17 18 19
week 8 20 21 22 23 24 25 26
week 9 27 28 29

Heimsóknir

Í dag: 14
Í gær: 143
Samtals síðan 15/2/07: 98313
Þú ert hér  : Heima

Veftré

icontexto-webdev-site-map-048x048Smelltu hér
fyrir veftré

Launakannanir FVB

icontexto-webdev-money-048x048Smelltu hér til að
sjá niðurstöður

Gerast félagsmaður

icontexto-webdev-add-048x048Smelltu hér til að
gerast félagsmaður

Félagaskrá FVB

icontexto-webdev-user-048x048Smelltu hér til
að sjá félagaskrá FVB

Tenglar

icontexto-webdev-config-048x048Smelltu hér
fyrir tenglasafn

Faglegt efni

icontexto-webdev-file-048x048Smelltu hér
fyrir faglegt efni