| Endurmenntunarreglur |
|
Úr samþykktum félagsins:
Endurmenntun félagsmanna 21. gr Félagsmaður skal á hverju 3ja ára tímabili sækja endumenntun sem félagið viðurkennir, sem svarar til 45 eininga, sbr. 2. mgr. Heimilt er að víkja frá þessu ef sérstaklega stendur á s.s veikindi. Einingar skulu reiknaðar sem hér segir: Fundir og námskeið á vegum Félags viðurkenndra bókara eða önnur sem félagið viðurkennir: Hálfdags námskeið eða ráðstefna ................... 7,5 einingar 22. gr Félagsmaður skal skrá þátttöku sína í námskeiðum eða fyrirlestrum á eyðublöð sem Félag viðurkenndra bókara útbýr til notkunar við framkvæmd lagagreina þessara og ber að skila því til Félags viðurkenndra bókara fyrir 31. janúar ár hvert. 23. gr Óski félagsmaður eftir áframhaldandi veru í félaginu skal hann sýna fram á að hann hafi sinnt endurmenntun sbr. 21. gr. Skili félagsmaður ekki staðfestingu á endumenntun sbr. 21. gr fellur hann af félagasskrá. 24. gr Sérstök nefnd skal hafa umsjón með endurmenntun félagsins m.a. með námskeiðum og ráðstefnum fyrir félagsmenn. Að jafnaði skal þó einn stjórnarmaður hafa umsjón með starfi nefndarinnar. Fimm nefndarmenn skulu vera í nefndinni, þar af einn formaður. Nefndarmaður skal sitja í a.m.k. 2 ár og kosið um 2 annað árið og 3 hitt. |
| 15.sep - Eindagi staðgreiðslu |
| 05.okt - Eindagi VSK |
| 29.okt - Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lýkur |
| Í dag: | 3 |
| Í gær: | 36 |
| Samtals síðan 15/2/07: | 63676 |
Smelltu hér
fyrir veftré
Smelltu hér til að
sjá niðurstöður
Smelltu hér til að
gerast félagsmaður
Smelltu hér til
að sjá félagaskrá FVB
Smelltu hér
fyrir tenglasafn
Smelltu hér
fyrir faglegt efni