Félag viðurkenndra bókara

Félagsfréttir
Gönguferð 1. september n.k. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 13:10

Kæru félagar.
Nú eru margir komnir til vinnu eða eru að klára sín sumarfrí og nú höldum við áfram að fara gönguferðir fyrsta miðvikudag í mánuði í vetur. Við munum nýta okkur gögnuleiðir innan höfuðborgarsvæðisins þar til vora fer á ný.
En fyrst verður haldið á Esjuna eða miðvikudaginn 1. september nk. og lagt af stað kl. 17,00 ath. breyttan tíma. Þeir sem ekki treysta sér til að ganga alla leið á fjallið geta komið með hópnum og farið styttra. Eftir göngu er tilvalið að koma við á Esjustofu, þar eru hollir réttir í boði í mat og drykk, sjá heimasíðuna www.esjustofa.is.

Hlökkum til að sjá ykkur vonum að fá bjart og gott veður og takið alla fjölskylduna og/eða vini með.
Skemmtinefndin


 
Gönguferð á Helgafelli Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 20. júní 2010 01:03

Gönguferð á Helgafell Miðvikudaginn 2. júní sl. var farin frábær gönguferð á Helgafelli í guðdómlegu veðri og var 16 manna hópurinn alsæll með túrinn. Næst verður gengið í kringum Vífilstaðavatn miðvikudaginn 7. júlí og verður lagt af stað frá bílastæðinu kl. 18:00.

Skemmtinefndin

 
Vel heppnuð gönguferð! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 06. maí 2010 14:11

Gönguferðin á Úlfarsfellið í gær heppnaðist afar vel og var þátttaka mjög góð, þrátt fyrir þoku og lítið útsýni. Mikill áhugi er meðal hópsins og hefur verið ákveðið að framvegis verði gönguferð á vegum skemmtinefndar FVB fyrsta miðvikudag í mánuði.


Næst verður haldið á Helgafellið við Kaldársel fyrir ofan Hafnarfjörð, 2. júní n.k. og lagt af stað kl. 18,00. Þaðan er mjög fallegt útsýni og þeir sem ekki treysta sér til að ganga á fjallið geta komið með hópnum að rótum Helgafellsins og gengið í kring um Valahnjúka eða Helgafellið sjálft og eru þar merktar gögnuleiðir. Hlökkum til að sjá ykkur vonum að fá bjart og gott veður og takið alla fjölskylduna eða vini með.

Skemmtinefndin



 
Gönguferð FVB á Úlfarsfell Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 30. apríl 2010 11:38

Skemmtinefnd FVB hefur ákveðið að efna til gönguferða á fellin/fjöllin í nágrenni Reykjavíkur fyrstu miðvikudaga í hverjum mánuði og verður fyrsta ferðin 5. maí nk. Farið verður á Úlfarsfellið (byrjað létt) - mæting á bílastæðinu við Skyggnisbraut í Úlfarsfellshverfinu kl. 18,00 og er áætlað að gangan taki um klst. Öll fjölskyldan hjartanlega velkomin og hundar einnig, hugið að hentugum útivistarfatnaði og góðum gönguskóm. Skv. veðurspá er mjög gott gönguveður.


Við hvetjum fólk til að standa upp frá skattframtölum, bókhaldi og öðrum spennandi verkefnum, hitta vini og kunningja í FVB og njóta íslenska vorsins.

 


Síða 1 af 110

Á döfinni

15.sep - Eindagi staðgreiðslu
05.okt - Eindagi VSK
29.okt - Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lýkur
síðasta mánuð September 2010 næsta mánuð
M Þ M F F L S
week 35 1 2 3 4 5
week 36 6 7 8 9 10 11 12
week 37 13 14 15 16 17 18 19
week 38 20 21 22 23 24 25 26
week 39 27 28 29 30

Heimsóknir

Í dag: 21
Í gær: 17
Samtals síðan 15/2/07: 63401
Þú ert hér  : Heima Fréttir Félagsfréttir

Veftré

icontexto-webdev-site-map-048x048Smelltu hér
fyrir veftré

Launakannanir FVB

icontexto-webdev-money-048x048Smelltu hér til að
sjá niðurstöður

Gerast félagsmaður

icontexto-webdev-add-048x048Smelltu hér til að
gerast félagsmaður

Félagaskrá FVB

icontexto-webdev-user-048x048Smelltu hér til
að sjá félagaskrá FVB

Tenglar

icontexto-webdev-config-048x048Smelltu hér
fyrir tenglasafn

Faglegt efni

icontexto-webdev-file-048x048Smelltu hér
fyrir faglegt efni